Vika 3
Í þessari viku eiga nemendur að tengja leikinn meira við það námsefni sem ætlað er í sögukennslu á unglingastigi, það er framkvæmt þannig að nemendur stilla leikinn á byrjun iðnbyltingar og byrja spilun þar. Í þessari viku er unnið meira með sögulega þætti tölvuleiksins og eru verkefni nemenda meira í þeim anda að skoða sögulega hluti. Nemendur eiga að spila leikinn sem einn af eftirtöldum þjóðarleiðtogum Napóleon, George Washington eða Otto von Bismarck. Nemendur verða að vera búnir að kynna sér leiðtoganna áður en þeir mæta í tíma, með þessu geta nemendur byrjað að spila leikinn sem sá leiðtogi sem þau völdu. Nemendur fá frá og með þessari viku valmöguleika um það hvernig þeir skila verkefni vikunnar af sér. Nemendur eiga annað hvort að rita verkefnið eða gera myndband. Með þessu er verið að gefa nemendum möguleika til þess að nota sýna helstu styrkleika og þannig stuðla að því að allir nemendur nái að njóta sín á námskeiðinu.
Vinnu og námsmarkmið
- Nemendur byrja að tengja á milli námsefnis og tölvuleiks.
- Nemendur velja sér þjóðarleiðtoga sem var upp í kringum iðnbyltinguna, nemendur verða að taka sér tíma í að lesa um leiðtoganna áður en byrjað er að spila.
- Nemendur vinna verkefni sem tengjast leiðtogunum, verkefnið þessa vikuna verður að greina á milli þess sem þeir gerðu í raunveruleikanum og þeirri stefnu sem á að taka í spilun með þjóðarleiðtoganum.
Kennsla
Myndbönd sem fjalla um hvern þjóðarleiðtoga fyrir sig. Þessi myndbönd eru tekin af Youtube þar sem mikið efni er til um þá, nemendur eiga einnig að lesa um þjóðhöfðingjanna í bókinni Lýðræði og tækni. Þeir lesa um George Washington á bls 21 til 24, um Napóleon á bls 35 til 37 og um Otto von Bismarck á bls 85 til 88.
|
|
Myndbandið er fengið af Youtube rásinni Bio. Myndbandið fjallar um ævi George Wasington.
|
Myndbandið er fengið af Youtube rásinni Ted-Ed. Myndbandið fjallar um ævi Napóleon.
|
Myndbandið er fengið af Youtube og höfundurinn er MuddyR. Myndbandið fjallar
um Otto von Bismarck.
um Otto von Bismarck.
Myndband sem sýnir hvernig á að stilla leikinn rétt í byrjun spilunar og skoðað hvað breytist við að stilla leikinn á þennan hátt
Myndbandið er samið af höfundi kennsluefnis. Í myndbandinu er verið að kenna
nemendum að setja upp leikinn þannig að hægt sé að spila hann frá tímum
iðnbyltingar.
nemendum að setja upp leikinn þannig að hægt sé að spila hann frá tímum
iðnbyltingar.
Myndband sem fjallar um hvernig sé best að byrja þegar stillingum er breytt
Myndbandið er samið af höfundi kennsluefnis. Í myndbandinu er verið að kenna
hvernig eigi að byrja að spila tölvuleikinn á tímum iðnbyltingar og hvað breytist með
því að spila leikinn á þessu tímabili.
hvernig eigi að byrja að spila tölvuleikinn á tímum iðnbyltingar og hvað breytist með
því að spila leikinn á þessu tímabili.
Ítarefni
Myndband sem fjallar ítarlega um ævi George Washington. Efnið er fengið af Youtube rásinni history biographys and documentarys.
George Washington.
Myndband sem fjallar um staðreyndir um Napóleon. Efnið er fengið af Youtube rásinni WatchMojo.com.
Napóleon Bonapart
Myndband um þá hugmyndafræði sem Bismarck notaði til þess að sameina Þýskaland í eitt ríki. Efnið er fengið af Youtube og er höfundur þess Tom Richey.
Otto von Bismarck www.youtube.com/watch?v=9z-zY9YpQIk
George Washington.
Myndband sem fjallar um staðreyndir um Napóleon. Efnið er fengið af Youtube rásinni WatchMojo.com.
Napóleon Bonapart
Myndband um þá hugmyndafræði sem Bismarck notaði til þess að sameina Þýskaland í eitt ríki. Efnið er fengið af Youtube og er höfundur þess Tom Richey.
Otto von Bismarck www.youtube.com/watch?v=9z-zY9YpQIk
Verkefni
Í þessari viku verður verkefnið samþætt þannig að nemendur eiga fjalla um þjóðarleiðtoga og spilun í leiknum. Umfjöllun á þjóðarleiðtoga á að byggja á sögulegum staðreyndum sem nemendur kanna áður en spilun hefst. Nemendur eiga einnig að fjalla um hvernig þeir ætla að spila leikinn sem byrjar við iðnbyltinguna, hver er munurinn á því að byrja á þessu tímabili miðað við óbreyttar stillingar. Nemendur hafa frjálsar hendur hvernig þeir skila verkefninu annað hvort sem texta eða myndband, nemendur eiga því að byggja á sínum styrkleikum. Hér að neðan eru punktar sem nemendur eiga að fara eftir við vinnu á verkefninu:
- Hvaða þjóðarleiðtoga valdir þú að nota við spilun, hvers vegna þessi þjóðarleiðtogi? Hvort tengist það tölvuleiknum eða því sem þú lærðir um hann áður?
- Hver er saga þessa þjóðarleiðtoga, hvað gerði hann á þeim tíma sem hann var uppi, hverjir voru hans helstu sigrar í sögunni?
- Hvernig er öðruvísi að spila leikinn þegar byrjað er á iðnbyltingartímanum? Hvernig ætlar þú að vinna leikinn?
- Myndbönd eiga að vera að minnsta kosti 5 mínútur, á meðan texta verkefni eiga að vera að minnsta kosti 500 orð.