Civilization sem kennslugagn
Í þessu lokaverkefni var lagt upp með að nota tölvuleik til þess að búa til kennsluefni og leikurinn sem var notaður er Civilization 5. Fljótlega kom í ljós að ekki var mögulegt að hafa efnið stutt því það myndi ekki skila þeim niðurstöðum sem vonast var eftir. Var þá ákveðið að hanna valáfanga fyrir unglingastig. Í námskeiðinu voru nokkrar greinar samþættar til þess að mynda eina heild í kringum tölvuleikinn og ná fram námslegum markmiðum.
Við gerð á kennsluefninu var skoðað efni sem aðrir hafa gert samhliða því að nota leikinn við kennslu. Aðallega var skoðað efni sem var notað með nemendum í Noregi við Nordahl Grieg skólann. Leikurinn var notaður í fjórar vikur, með spilun var tvinnað saman nám í greinum eins og ensku, samfélagsfræði og norsku (Husoy, 2015). Það sem ólíkt var gert í þessu kennsluefni var að leikurinn var notaður samfleytt. Einnig var rannsókn Squire (2004) skoðuð til þess að meta hvort hægt væri að nýta leikinn við gerð kennsluefnis.
Í verkefninu var byrjað á að gera áætlun og hluta af því kennsluefni sem þurfti til þess að nýta tölvuleikinn við kennslu, lagt var upp með að nota speglaða kennslu eða vendikennslu þar sem kennsluefni var haft í myndbandsformi þar sem nemendur gátu nýtt sér eftir þörf á meðan vinnu á námskeiðinu stóð yfir.
Námskeiðið tengist efni sem nemendur læra í sögu og var tekið mið af bókunum Lýðræði og tækni og Styrjaldir og kreppa. Unnið var með tölvuleikinn samhliða bókunum sem fjallar um söguna frá byrjun iðnbyltingar til nútímans.