Vika 1
Vikan er nýtt til þess að láta nemendur kynnast leiknum og átta sig á því hvernig leikurinn virkar. Nemendur eiga auk þess að vinna verkefni sem tengjast notkun á tölvuleikjum og fjalla aðeins um tölvuleikinn sem notaður er á námskeiðinu.
Vinnu og námsmarkmið
- Nemendur byrja að kynnast leiknum og átta sig á grunnatriðum
- Nemendur tengja einhvern sögulegan þátt leiksins við raunveruleikann.
- Nemendur skrifa verkefni sem byggist upp á spilun á leiknum og fyrri reynslu af tölvuleikjum.
Kennsla
- Myndband sem kynnir hvers vegna unnið sé með Civilization 5 tölvuleikinn og hvernig á að setja upp leik til spilunar
Myndbandið er samið af höfundi kennsluefnis og var því hlaðið upp á Youtube. Í myndbandinu er tölvuleikurinn Civilization kynntur fyrir nemendum og farið er í hvernig á að setja upp fyrsta leik.
2. Myndband sem skýrir hvernig sé best að byrja leikinn.
Myndbandið er samið af höfundi kennsluefnis og var hlaðið upp á Youtube. Í myndbandinu er kennt hvernig sé best að hefja spilun á leiknum.
3. Myndband sem fer í grunnatriðin í leiknum og á leikborðinu sem leikurinn spilast af.
Myndbandið er samið af höfundi kennsluefnis og var eftir það hlaðið upp á Youtube. Í þessu myndbandi er verið að kenna grunnatriði í leiknum ásamt því að fara yfir helstu atriði sem viðkemur spilun á leiknum. Auk þess er kennt á flesta þá þætti sem eru á leikborðinu og þeir skýrðir út fyrir nemendum.
Ítarefni um spilun á leiknum
Þetta myndband fjallar ítarlega um spilun á tölvuleiknum og er efnið samið af BlameRobVideos
https://www.youtube.com/watch?v=I__9ZlOUG4E.
Þetta myndband sýnir þegar reyndur spilari kennir öðrum að spila leikinn og er það samið af Linus117.
https://www.youtube.com/watch?v=ZlNiLgimZ3U
Myndband sem sýnir þróun í leiknum sem stefnir að yfirráðar sigri og er efnið samið af tgnGames
https://www.youtube.com/channel/UCNBwxPqzdZeLGv8SPoosjNg
https://www.youtube.com/watch?v=I__9ZlOUG4E.
Þetta myndband sýnir þegar reyndur spilari kennir öðrum að spila leikinn og er það samið af Linus117.
https://www.youtube.com/watch?v=ZlNiLgimZ3U
Myndband sem sýnir þróun í leiknum sem stefnir að yfirráðar sigri og er efnið samið af tgnGames
https://www.youtube.com/channel/UCNBwxPqzdZeLGv8SPoosjNg
Verkefni nemenda
Nemendur skrifa upp texta sem er að minnsta kosti 400 orð og atriðin sem nemendur eiga að hafa í huga eru hér að neðan.
- Nemendur skrifa um eigin reynslu af spilun tölvuleikja, hver er þinn uppáhaldsleikur, um hvað fjallar leikurinn og hvernig á að vinna leikinn.
- Hefur þú spilað Civilization áður, ef þú hefur spilað leikinn hvað finnst þér um þessa gerð af leikjum og hefur þú lært eitthvað af leiknum.
- Ef nemandi hefur ekki spilað leikinni en hefur spilað svipað gerð af leik sem byggir á herkænsku.
- Hvernig gekk að spila leikinn þessa vikuna og hvað sérðu fyrir þér að geta lært einhverja hluti af spilun í leiknum.
- Hvaða sögulegi þáttur fannst þér merkilegastur í spilun leiksins.