Vika 4
Í þessari viku vinna nemendur áfram í leiknum sem þeir byrjuðu að spila vikuna á undan. Leikborðið sem nemendur settu upp fyrir þennan part af námskeiðinu á að vera töluvert minna en það sem þeir gerðu áður, það er gert til þess að nemendur lendi í deilum við aðrar siðmenningar og með þessu er reynt að skapa svipað ástand og í fyrri heimstyrjöldinni. Nemendur vinna við að tengja á milli þess sem hvað varð til þess að fyrri heimstyrjöldin braust út og þeirra deilna sem þeir lenda í leiknum. Nemendur eiga að vinna verkefni sem tengir saman spilun í leiknum og fyrri heimstyrjöldina, nemendur hafa frjálsar hendur hvort þeir skrifa texta eða gera myndband.
Vinna og námsmarkmið
- Nemendur eiga að kynnast fyrri heimstyrjöldinni, vita hvað olli því að stríð braust út og tengja það við spilun á leiknum hvort að ófriður í þeirra leik sé eitthvað svipaður og í fyrri heimstyrjöldinni.
- Nemendur eiga að vinna í því með spilun að átta sig á því hvernig hægt er komast hjá stríðum og hugleiða afleiðingar stríða. Nemendur eiga að skoða afleiðingar fyrri heimstyrjaldar og hvort að friður hafi fengist með þeim stríðslokum.
- Nemendur eiga að skoða hvað gerist á milli stríða og sjá hvað veldur því að ófriður brýst aftur út.
Kennsla
Myndband sem sýnir hvers vegna fyrri heimstyrjöldin byrjaði. Nemendur eiga einnig að fræðast um efnið á bls 18 til 30 í bókinni Styrjaldir og kreppa
Myndbandið er fengið af Youtube af rásinni WatchMojo.com. Í þessu myndbandi er fjallað um þá atburði sem leiða til fyrri heimstyrjaldar.
Myndband um fyrri heimstyrjöldina auk þess eiga nemendur að lesa bls 32 til 35 í bókinni Styrjaldir og kreppa.
Myndbandið er fengið af Youtube rásinni Epic History Tv. Myndbandið fjallar um byrjun fyrri heimstyrjaldar en á rásinni er að finna yfirlit fyrir hvert ár af stríðinu en þetta myndband fjallar um árið 1914 og atburði tengdu því ári.
Myndband um afleiðingar fyrri heimstyrjaldar. Nemendur eiga einnig að lesa bls 36 til 38 í bókinni Styrjaldir og kreppa.
Myndbandið er fengið af Youtube rásinni World History. Myndbandið fjallar um þær afleiðingar sem fyrri heimstyrjöldin hafði.
Myndband um ástæður fyrir því að fara í stríð í tölvuleiknum.
Myndbandið er fengið af Youtube og er höfundur þess FilthyRobot. Myndbandið fjallar um stríð í tölvuleiknum og hvaða afleiðingar eru á því að vera í stríðsrekstri í leiknum.
Ítarefni
Fyrri heimstyrjöldin
Heimildamynd frá BBC sem fengin er af Youtube rásinni Documentary Matters.
https://www.youtube.com/watch?v=X2DLybNYta4.
Heimildarmynd frá National Geographic Documentary rás þeirra á Youtube.
https://www.youtube.com/watch?v=cFCWfyXSe70
Heimildamynd frá BBC sem fengin er af Youtube rásinni Documentary Matters.
https://www.youtube.com/watch?v=X2DLybNYta4.
Heimildarmynd frá National Geographic Documentary rás þeirra á Youtube.
https://www.youtube.com/watch?v=cFCWfyXSe70
Verkefni
Nemendur eiga að fjalla um aðdraganda fyrri heimstyrjaldarinnar, nemendur eiga einnig að fjalla um styrjöldina sjálfa og tengja það við eigin spilun. Auk þess eiga nemendur að fjalla um tímabilið á milli styrjalda og skoða hvort það sé mögulegt að endurskapa það tímabil í tölvuleiknum sjálfum. Nemendur mega annað hvort skila rituðu verkefni eða myndbandi.
- Hvaða atburður gerði það að verkum að fyrri heimsstyrjöldin byrjar, hverjir voru í bandalagi og er einhver samanburður með því spilun á tölvuleiknum hjá þér eða hefur þú lent í deilum sem hafa endað með stríðið við aðra siðmenningu.
- Hvað einkennir fyrri heimstyrjöldina og eru miklar tækninýjungar í stríðinu, hefur þú náð að byggja einhvern af þessu hlutum sem notaðir voru í fyrri heimstyrjöldinni.
- Hvernig endaði fyrri heimstyrjöldin, hvernig voru skilmálar friðar og hverjir voru það sem töpuðu styrjöldinni ef hægt er að segja það.
- Hvernig gengur spilun þegar leikurinn er stilltur á byrjun iðnbyltingar, geturðu séð möguleika siðmenningar þinnar á sigri.
- Nemendur eiga að gera annað hvort ritunarverkefni sem á að vera minnsta lagi 500 orð eða myndband sem er að minnsta kosti fimm mínútur að lengd.