Vika 5
Í þessari viku á að skoða hvað er endurblöndun (e. mod) á tölvuleikjum, nemendur er kynntir fyrir því hvað er endurblöndun og hvernig sé hægt að gera endurblöndun sjálfir á tölvuleiknum sem notaður er á námskeiðinu. Nemendur verða einnig kynntir fyrir þeim verkfærum sem þeir geta notað til þess að endurblanda leikinn sjálfir. Sú endurblanda sem verður síðan spiluð er sviðsetning á seinni heimstyrjöldinni, þar sem spilarar velja sér ákveðin leiðtoga sem var við völd á þeim tíma. Nemendur eiga að vinna verkefni í kringum endurblöndun á leikjum, fjalla um hvernig þeir myndu vilja endurblanda leikinn sjálfir og hvort sé mögulegt að endurskapa einhvern þátt úr sögu Íslands í leiknum.
Vinna og námsmarkmið
- Nemendur kynnast því hvað er að endurblanda leik og hvernig það er gert.
- Nemendur eiga að geta sett upp endurblöndun, nýtt sér hana við spilun á leiknum og getað séð sögulegt gildi af þeim.
- Nemendur eiga að kynnast hvað olli því að seinni heimstyrjöldin brýst út, kynna sér nasisma, kommúnisma og leiðtoganna Stalín og Hitler.
- Nemendur byrja spila leikinn með endurblöndun sem byrjar í upphafi seinni heimstyrjaldar.
Kennsla
Myndband sem segir hvað er endurblöndun
Myndaband af Youtube rásinni Techquickie. Í myndbandi er fjallað um hvað sé endurblöndun og hvers vegna sé verið að endurblanda tölvuleiki.
Myndbönd sem sýna hvernig eigi að endurblanda tölvuleikinn
|
|
Myndböndin hér að ofan eru fengin af Youtube rásinni gamexiom. Í myndböndunum er verið að kenna hvernig mögulegt er gera endurblöndun á tölvuleiknum Civilization.
Myndband sem sýnir hvar sé hægt að ná í endurblandanir og hvernig sé hægt að nota endurblandanir frá öðrum spilurum.
Myndband er samið af höfundi kennsluefnis. í myndbandinu er verið að kenna hvernig og hvar sé hægt að nálgast endurblandanir á leiknum. Auk þess er nemendum kennt hvernig eigi að spila endurblandanir í leiknum.
Myndband sem kennir á spilun þegar búið er að setja upp endurblöndunina fyrir seinni heimstyrjöldina. Auk þess lesa nemendur bls 44 - 45, bls 48 - 50 og 82 - 90 í bókinni Styrjaldir og kreppa.
Myndband er samið af höfundi kennsluefnis. Í myndbandinu er verið að kenna nemendum að spila tölvuleikinn þegar búið er að setja upp endurblöndu sem byggir á seinni heimstyrjöldinni.
Verkefni
Nemendur eiga að gera einfalda endurblöndu með því að fylgja kennslumyndbandi, nemendur mega gera meira ef þeir vilja en ekki nauðsynlegt. Þeir eiga að vinna verkefni sem byggir á því að þeir búa til áætlun um endurblöndun sem tengist sögu Íslands. Nemendur eiga einnig að fjalla um upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar og hvað var kveikjan að stríðinu.
- Hvernig á að endurblanda tölvuleikinn, hvaða tímabil hefur þú áhuga á að spila í leiknum úr Íslandssögunni og hvernig myndir þú útfæra það. Hvað þyrfti að gera til þess búa til þess endurblöndu, þarf að búa til leiðtoga og þarf að gera nýtt kort.
- Hvað atburðir leiða til þess að seinni heimstyrjöldin byrjar. Fjallið aðeins um nasisma og kommúnisma einnig um leiðtoga þessara stefna.
- Hvaða leiðtoga ætlar þú að spila með í seinni heimstyrjaldar endurblöndunni og hvers vegna. Hvernig gekk þér að byrja að spila í endurblöndunni.
- Nemendur eiga að skila skrá með einfaldri endurblöndu líkt og í myndbandinu. Nemendur hafa val um að skila verkefni annað hvort sem texta eða myndbandi. Texti á að hafa að minnsta kosti 300 orð og myndband að minnsta kosti þrjár mínútur.