Um leikinn Civilization 5
Civilization er herkænsku tölvuleikur sem byggir á umferðaskiptri spilun, spilun leiksins byggist upp á því að fara í hlutverk þekktra þjóðarleiðtoga sem leiða sína siðmenningu áfram. Leikurinn byggir einnig á sögulegum þáttum, þrátt fyrir það er hann ekki sögulega nákvæmur. Í hlutverki þjóðarleiðtogans þarf spilarinn að hafa samskipti við aðrar þjóðir sem byggja á diplómatískum samskiptum, afla nauðsynlegra náttúruauðlinda og leiða tæknilega þróun þjóðarinnar. Diplómatísk samskipti skipta miklu máli við spilun þar sem þær taka oft mið af efnahag siðmenninga, her og menningarlegum styrk þjóða. Við þessi samskipti geta oft komið upp deilur sem verður að leysa úr á einn eða annan hátt. Nauðsynlegt er fyrir spilun að hafa samherja í öðrum siðmenningum til þess að standa ekki einn eftir þegar deilur byrja að rísa á milli siðmenninga.
Tölvuleikurinn eða tölvuleikjaserían á sér langa sögu og var fyrsti leikurinn gefinn út árið 1991 og leikurinn sem er notaður er sá fimmti í röðinni. Leikurinn var í fyrstu gefinn út til þess að líkja eftir upplifun höfundar á því að spila borðspilið Risk, spilið byggist upp á því að ná heimsyfirráðum í gegnum hernað og spilast umferðaskipt líkt og tölvuleikurinn. Því má segja að tölvuleikurinn Civiliaztion eigi margt sameiginlegt með borðspilum. Leikurinn sem unnið var með í kennsluefninu var gefinn út árið 2014.