Námsmarkmið
Helsta markmið námskeiðsins er að vekja áhuga nemenda á námi, með því að nota aðferðir sem þeir hafa ekki kynnst áður. Rannsóknir hafa sýnt að nemendur missa meira áhugann á náminu þegar þeir eru lengra komnir í grunnskóla (Amalía Björnsdóttir, Baldur Kristjánsson, Börkur Hansen og Friðgeir Börkur Hansen, 2008). Með því að nota tölvuleik sem kennslugagn er verið að reyna að nálgast menningarheim unglingsins og opna fyrir möguleikann á því að læra í gegnum spilun á tölvuleik.
Til hvers eigum við að nýta tölvuleik til þess að kenna greinar sem hafa áður verið kenndar með góðum árangri á annan hátt? Ef við skoðum kannanir þá sýna þær okkur að 97% unglingar hafa einhvern tímann spilað tölvuleik og gefur það okkur tækifæri að nýta tölvuleiki sem kennslugagn og ná þannig ef til vill betur til nemanda. Þróun tölvuleikja er mjög hröð og stefna margir tölvuleikjaframleiðendur á að framleiða tölvuleiki sem líkjast meira raunverulegum heimi. Tilgangurinn með því er að fara að nýta tölvuleiki til þess að bæta heiminn og þjálfa spilara í að verða betri borgara (McGonigal, 2011).
Telja má líklegt að þeir nemendur sem myndu velja námskeiðið hafi áhuga á tölvuleikjum og hafi spilað tölvuleiki að einhverju ráði. Fjöldinn getur auk þess stýrt mikið þeim markmiðum sem sett eru á námskeiðinu og þeim kröfum sem gerðar eru til nemenda. Þrátt fyrir að fá einungis þá nemendur sem hafa áhuga á tölvuleikjum þá væri mjög gott að fá þverskurð af nemendum sem eru misjafnir að námslegri getu. Helstu markmið námskeiðsins:

- Að nemendur kynnist því að læra í gegnum tölvuleik og geti nýtt sér námsefni námskeiðsins til framtíðar.
- Nemendur geti tengt það sem gerist í leiknum við söguna eins og hún gerðist í raun.
- Að nemendur geti tjáð sig um sambandið milli tölvuleiksins og sögunnar annað hvort munnlega eða í rituðum texta.