Vika 2
Nemendur halda áfram að spila leikinn frá þeim stað sem þeir voru á, nemendur þurfa að tengjast leiknum vel þessa vikuna og standa klárir á grunnatriðum í spilun. Nemendur vinna verkefni í vikunni þar sem þeir lýsa nánari spilun sinni í leiknum og gera myndband þar sem þeir fjalla um sína spilun í leiknum. Myndbönd sem nýtt eru til kennslu þessa vikuna er notað af netinu, það er gert vegna þess að mikið efni er til um hvernig eigi að taka upp af skjá og hvernig eftirvinnsla á myndböndum á sér stað í ýmsum stýrikerfum. Með þessu er verið að reyna að gera nemendur aðeins sjálfstæðari í því að leita sér af upplýsingum um hvernig eigi að gera ýmsa hluti án þess að þurfa mikla hjálp frá kennaranum.
Vinnu og námsmarkmið
- Nemendur eiga að vera búnir að ná grunnatriðum í spilun og eiga að þekkja hvernig þeir geta unnið leikinn.
- Nemendur eiga að kynnast því hvernig þeir taka upp myndband á skjá og geta talað inn á það.
- Nemendur eiga að kynnast hugbúnaði til upptöku og eftirvinnslu á myndböndum.
Kennsla
Myndbönd sem sýnir hvaða verkfæri er hægt að nota til þess að taka upp af skjá og hvernig eigi að taka upp.
|
|
Myndbandið er fengið af Youtube frá notenda sem kallar sig Private_Splat. Í myndbandinu er verið að kenna hvernig er hægt að taka upp myndbönd af skjá með vlc margmiðlunar spilaranum.
|
Myndbandið er fengið af Youtube frá notenda sem heitir Andy Slye. Í myndbandinu er verið að kenna nemendum að taka upp af skjá með quicktime margmiðlunar spilaranum.
|
Myndbönd sem skýra út leiðir til þess að vinna leikinn
|
|
Myndböndin hér að ofan eru fengin af Youtube frá notenda sem er með leikjarásina BAStartGaming. Höfundur er Drew, hann fjallar mikið um Civilization tölvuleikinn og hægt er að finna ýmislegt um leikinn á þessari rás. Í þessum myndböndum er farið yfir tvo möguleika til þess að vinna leikinn Civilization.
|
|
Myndbandið er fengið af Youtube frá notenda sem notar nafnið Nine2Five Studios. Í þessu myndbandi er fjallað um hvernig eigi að vinna menningarlegan sigur í leiknum.
|
Myndbandið er frumsamið af höfundi kennsluefnis sem síðan er sett upp á Youtube. Myndbandið fjallar um hvernig eigi að ná yfirburðar sigri í tölvuleiknum.
|
Myndbönd sem sýnir þá möguleika sem hægt er að nota við eftirvinnslu á myndefni
|
|
Myndbandið er fengið af Youtube frá notenda sem notar nafnið House Divided. Í þessu myndbandi er kennt á hvernig sé hægt að eftir vinna myndbönd með hugbúnaðinum Windows Movie Maker.
|
Myndbandið er fengið af Youtube frá notenda sem notar nafnið Eric Timmer. Í þessu myndbandi er kennt grunnatriðin sem þarf að hafa í huga við notkun á Imoive hugbúnaðinum.
|
Myndbandið er fengið af Youtube frá notenda sem notar nafnið Derral Eves. Í
myndbandinu er verið að kenna hvernig eigi að vinna myndbönd á Youtube.
myndbandinu er verið að kenna hvernig eigi að vinna myndbönd á Youtube.
Ítarefni
Imovie ítarefni. Myndband sem fer ýtarlegra í notkun á hugbúnaðinum og er samið af David A. Cox
Moviemaker ítarefni. Myndbandið fer ýtarlegra í notkun á hugbúnaðinum og samið af deltadonut.
Moviemaker ítarefni. Myndbandið fer ýtarlegra í notkun á hugbúnaðinum og samið af deltadonut.
Verkefni
Nemendur eiga í þessu verkefni að gera myndband um spilun sína á leiknum, geta unnið það og sett það fram á hugbúnaði sem kynntur er fyrir nemendum. Myndböndin eiga að minnsta kosti að vera 3 mínúta löng og hér fyrir neðan eru punktar sem nemendur eiga að fylgja við gerð á myndbandi.
- Nemendur fjalla um þann þjóðarleiðtoga sem þeir völdu til þess að spila leikinn með, fjalla um hvar hann réði ríkjum, hvað hann er þekktastur fyrir í sögunni og á hvaða tíma var hann uppi.
- Nemendur eiga að gera grein fyrir staðsetningu á borg sinni og hvers vegna var borgin sett upp þarna.
- Hvaða leið ætla nemendur að fara til þess að sigra leikinn.