Heildarskipulag og samþætting námsgreina
Skipulagið á námskeiðinu var byggt á því sem höfundur hefur séð í sínu vettvangsnámi, í þeim skólum voru valáfangar bundnir við ákveðin tímabil. Vegna þess var sett upp sex vikna valnámskeið þar sem nemendur voru tvisvar í viku á námskeiðinu. Grófleg áætlun var samin en þó var aðaláhersla lögð á að gera kennslumyndbönd og verkefni sem tengdust spilun leiksins.
Við gerð á kennsluefni voru notuð frumsamin myndbönd, ásamt því voru nýtt myndbönd frá öðrum sem fjalla um ákveðið efni á námskeiðinu.
Á námskeiðinu var verið að samþætta námsgreinarnar samfélagsfræði, íslensku, upplýsingatækni og ensku. Aðallega var unnið innan samfélagsfræðinnar með sögu, þar sem námskeiðið var byggt í kringum tölvuleikinn og sögubækur. Þáttur hverrar námsgreinar fyrir sig var misjafn, þar sem saga hafði stærstan þáttinn, íslenskan var notuð til ritunar á verkefnum sem nemendur þurftu að vinna, upplýsingatækni var notuð til þess að miðla því sem nemendur skrifa eða voru að vinna með og enskan var notuð mikið til þess að lesa það sem fram fór í leiknum, þar sem hann var á ensku.
Vinnan á námskeiðinu var aðallega í kringum spilun á tölvuleiknum, þar sem tekist var á við ýmsa hluti sem leikurinn bauð upp á. Verkefni sem unnin voru vikulega byggja á spilun á leiknum og þeim greinum sem samþætt voru á námskeiðinu. Byrjað var að vinna í grunnatriðum í tölvuleiknum fyrstu tvær vikurnar, eftir það var kafað dýpra í leikinn þar sem skoðað var tímabilið frá iðnbyltingu þangað til dagsins í dag. Einnig voru endurblandanir (e. mod) notuð til þess að reyna að skapa nákvæma mynd af ákveðnum þáttum af sögunni og kynnt fyrir nemendum hvernig þeir gátu endurblandað leikinn sjálfir.
Umhverfið í kringum kennsluna er hugsað til þess að nota á miðli líkt og moodle eða google classroom. Þar inni yrði sett upp vikulegt skipulag ásamt ítarefni sem tengdust námsgreinunum, kennslumyndböndum og verkefni hverrar viku fyrir sig. Þegar nemendur væru að vinna við námskeiðið í skólanum er kennari til staðar til að leiðbeina nemendum við spilun á leiknum og hjálpa nemendum við vinnu á verkefnum.