Vika 6
Í loka viku námskeiðsins verður mikið unnið í kringum seinni heimstyrjöldina. Þar sem nemendur spila leikinn í kringum þann tíma, einnig þurfa nemendur að vinna ákveðin verkefni sem fjalla um þennan tíma, þar sem lagt verður meira upp úr atburðum í Evrópu þar sem endurblandan tekur einungis fyrir það landsvæði og þjóðarleiðtoga. Kennsluefni vikunnar verður meira af myndböndum og lesefni sem fjallar um þennan tíma. Verkefni vikunnar verður samblandað af því sem gerðist í seinni heimstyrjöldinni og því sem gerist í spilun nemenda.
Vinna og námsmarkmið
- Nemendur eiga að þekkja helstu atburði sem tengjast seinni heimstyrjöldinni í Evrópu.
- Nemendur eiga að vinna að því að skilja aðdraganda og afleiðingar af styrjöldinni bæði með því að fara í gegnum kennsluefnið og því sem gerist í leiknum hjá þeim.
- Nemendur eiga vera orðnir það góðir í spilun á leiknum að kennari þurfi lítið að hjálpa þeim við spilun eða útskýra einhverja þætti leiksins.
Kennsla
Myndband sem fjallar um seinni heimsstyrjöldina og auk þess eiga nemendur að lesa um seinni heimstyrjöldina í bókinni Styrjaldir og Kreppa á bls 106 til 117.
Myndband sem fengið er af Youtube rásinni CrashCourse, söguefnið á rásinni er samið af John. Myndbandið fjallar um seinni heimstyrjöldina á óvenjulegan en skemmtilegan hátt.
Myndband sem sýnir afleiðingar seinni heimstyrjaldar
Myndbandið er fengið af WatchMojo.com rásinni. Í myndbandinu er fjallað þau áhrif sem seinni heimstyrjöldin hafði á heiminn.
Myndband sem sýnir þegar lengra er komið í spilun á seinni heimstyrjöldinni í tölvuleiknum
Myndbandið er samið af höfundi kennsluefnis. Í myndbandinu er verið að sýna framvindun á spilun á endurblöndu um seinni heimstyrjöldina og nemendur sjá við hverju má búast þegar spilun heldur áfram í endurblöndunni.
Ítarefni
Myndband sem fengið af Youtube og er höfundur þess John D Ruddy. Myndbandið fjallar um hver vegna varð aftur heimstyrjöld.
Seinni heimstyrjöldin https://www.youtube.com/watch?v=wvDFsxjaPaE.
Meira ítarefni er hægt að finna á Youtube þar sem margir fjalla um þennan tíma í sögunni. Því geta nemendur fundið frekar það efni sem þeir hafa áhuga að fræðast um sjálfir sem tengjast seinni heimstyrjöldinni.
Seinni heimstyrjöldin https://www.youtube.com/watch?v=wvDFsxjaPaE.
Meira ítarefni er hægt að finna á Youtube þar sem margir fjalla um þennan tíma í sögunni. Því geta nemendur fundið frekar það efni sem þeir hafa áhuga að fræðast um sjálfir sem tengjast seinni heimstyrjöldinni.
Verkefni
Nemendur eiga að grein fyrir því sem gerðist í seinni heimsstyrjöldina og því sem gerist leiknum hjá sér. Þeir eiga að tengja á milli spilunar og því sem gerðist í raunveruleikanum, er spilun þeirra á svipaðan hátt og styrjöldin þróaðist. Nemendur eiga að hafa eftirtalda þætti í huga við vinnu á verkefninu.
- Hvar brutust fyrst út bardagar í styrjöldinni, hverjir voru að berjast. Er einhver samlíkingin við spilun hjá þér við það sem gerðist í seinni heimstyrjöldinni.
- Með hvaða leið sérðu fram á að vinna sigur í leiknum, tengist það á einhvern hátt við það sem gerðist í seinni heimstyrjöldinni.
- Hvernig endaði spilunin hjá þér og náðist að klára leikinn, ef svo hvernig náðir þú fram sigri.